Thursday, August 03, 2006

var að kaupa makka.

og fann þetta yndislega forrit...


I PRESENT HELGI's ALIENS!!!!!









Friday, June 09, 2006

Vara á lager.

Hérna kemur smá hugsun sem hefur verið að gerjast hjá mér.

Segjum sem svo að þú sért kaupmaður útí á landi, þú sérð um að kaupa mjólk af bóndum og flytja til Reykjavíkur þú og bændurnir eruð búnir að fjárfesta miklum pening í búnað, aðferðafræðis kennslu og rannsóknir en eruð samt að njóta góðs af rekstrinum og eruð bara nokkuð sáttir við ykkar stöðu.

Í Reykjvík er fyrirtæki sem kaupir af þér vöruna, vinnur hana og kemur henni í umferð á meðal alennings. En og aftur eru miklar fjárfestingar í gangi hjá þeim aðila og endursöluaðilum, og þó um gróða sé að ræða þá eru skuldir vegna fjárfestinga hugsanlega til margra ára og þarf að viðhalda reglulegum rekstri og sölu til þess að borga af þessum lánum til endaloka.

Ýmindaðu þér nú að það kemur til þín maður sem segir þér frá alveg frábærri vöru sem sé með sama næringargildi og mjólk, hægt að vinna sömu vörur úr henni og er mun hollari fyrir umhverfið sem og neytandan en það er ekki hægt að nýta neitt af þeim búnaði sem fjárfest hefur verið í til þess. Hvað segirðu þá? Á að henda öllum þeim tækjum sem búið er að koma sér upp bara til þess að hjálpa umhverfinu? hvaða rugl er það? Og bændurnir hvað eiga þeir að gera? ekki rækta þeir þessa nýju vöru?

Semsagt allt fer á annan endan hjá þessum iðnaði og munu þeir berjast með kjafti og klóm gegn þessari nýjung.

Þetta er einmitt að mínu mati sú aðstaða sem stóru olíufyrirtækin standa fram fyrir í dag, það hefur hrikaleg fjárfesting átt sér stað vegna þess iðnaðar sem er til í kringum olíu og það er ekki bara fjárfesting í búnaði heldur eru heil þjóðfélög sem eiga allt sitt undir því að sala olíu haldi áfram eins lengi og hægt er.

Stóru olíufyrirtækin eru tildæmis í dag að skipta út öllum stóru olíu flutninga skipunum sínum til þess að standast nýja staðla sem settir hafa verið í Evrópu og Bandaríkjunum, þessir staðlar voru settir vegna umhverfis slysa og er seinasti séns til þess að skipta þessum skipum út árið 2015. Talið er líklega að það verði klárað fyrir árið 2010. Mikil fjárfesting í gangi þarna...

Þess fyrir utan eru öll stóru olíufyrirtækin að græða meira á þessu ári en því síðasta, og flæði olíu til hinna vestrænu landa alveg hreint ótrúlegt. Svo heyrast raddir um að það þurfi að finna nýjan kost, bæði fyrir umhverfið og þá sérstaklega útaf því að olían er að klárast.

En ég get lofað ykkur því að olíufyrirtækin munu skipuleggja sölu síðasta olíu dropans áður en þeir leggja vinnu í að finna hvað tekur við þegar olían er búinn, því olían er að þeirra mati óseld vara sem situr bara á lager og maður hættir ekki að selja vöru af lager bara útaf því að það eru til betri kostir, eða er það?

Eigum við ekki bara að taka þátt í þessu og kaupa okkur Hummer? þá verða olíu fyrirtækin ánægð með þig.

//Helgi

Sunday, May 28, 2006

Soldið á skjön.

Nú ætla ég að skrifa færslu sem er soldið á skjön við fyrri færslur mína vegna sama efnis. Eftir að ég skrifaði stutta grein í gærkveldi þá hef ég bæði fengið gott feedback frá Adda sem og frá honum föður mínum. Fyrir þá sem ekki vita að þá er hann karl faðir minn mjög sjálfstæður einstaklingur með sterkar skoðanir á hlutunum og alls ekki hræddur við að taka ákvarðanir og framkvæma þær.

Samræður mínar við hann í kvöld, plús sjónarhorn sem Addi bennti einmitt á hérna í comment við fyrri grein, gerði mér soldið ljóst.

Málið er einfalt, álverið í straumsvík hefur skilað íslendingum ágætis pening í kassan síðan það var bygt. Ég veit að margir munu mótmæla þessari fullyrðingu en þetta er bara þannig, heyrst hefur fleigt (óstaðfest semsagt) að álverið í straumsvík beri ábyrgð á 10% þess fjár sem flæðir inn til íslands, það er ekki lítil fjárhæð ef rétt er.

Þetta þýðir að stjórnmála mönnum þykir þetta sjálfsögð og einföld aðferð til að bæta fjárhag íslendinga til langframa, og mig grunar að 10 kjörtímabil (40ár) séu ágætis langframi í þeirra augum.

Ég get alveg séð það og skilið að álver séu álitlegur kostur við uppbyggingu lands til næstu 40 ára.

En vandamálið er að álver þurfa orku, sem jú við ættum að eiga nóg af. Allavegana hefur það verið auglýst lengi að við eigum mikin möguleika á að framleiða rafmagn á þann hátt að hann skaðar ekki lífríki jarðar. Til þess að framleiða þetta rafmagn þá þurfum við að fórna nokkrum prósentum landsins okkar, hérna er líklegast staðurinn þar sem ég segi skilið við að þetta sé í lagi.

Kannski er ég orðinn einhver hugsjónar tík sem tek afstöðu bygða á tilfinningum fremur en skynsemi, mér fannst magnað að standa á börmum Dimmugljúfra og finna orkuna sem rann þar í gegn ef ég myndi ætla mér að eignast börn þá myndi mig langa til að standa með þeim á þessum stað í framtíðinni og leifa þeim að finna þessa óbilandi orku flæða þarna í gegn, svo kemur úr kafinu að hún er ekki óbilandi, manneskjan hefur kraftin til að loka á heila dæmið.

En staðreyndin er sú að það verður ekki hægt, jú dimmugljúfur verða þarna áfram en það verður ekki mikill straumur þar í gegn. Þetta fyllir mig af leiðindar tilfinningum og þær sjá til þess að mér finnst ekki þess virði að sóa bakgarðinum okkar fyrir aðeins meiri velmegun íslendinga til næstu ártugina.

Þarna erum við líklegast kominn til botns í þessu, í augum fólks sem eru á móti virkjunum er þetta tilfinninga mál. Í augum þeirra sem eru ekki búnir að mynda sér skoðun eða eru meðfylgjandi virkjunum þá er þetta spurning um kaup og sölu. Það er ekki hægt að ræða hlutina skynsamlega þegar samningsaðilar koma að borðinu með mismunandi verð hugmyndir, eða það held ég ekki.

Vinstri grænir virðast hafa í kringum 15% kjörfylgi á íslandi í dag, hugsanlegt er að þetta sé ofmetin tala hjá mér. Ef við myndum áætla að allir kjósendur Vinstri grænna séu á móti virkjunum og helmingur Samfylkingarinnar að þá sitjum við uppi með 30% þjóðarinnar sem er á móti virkjunum.

Ekki mjög vísindaleg niðurstaða hjá mér ég veit, en þetta er að mínu mati frekar raunveruleg hugmynd um þá íslendinga sem eru á móti frekari virkjunum. 30% er engann veginn nálægt því að vera meirihluti þjóðarinnar, samfylkingin næði ekki einu sinni að stofna stjórn með þannig fylgi.

Í lýðræðislegu ríki þýðir þetta að virkjanir munu halda áfram að rísa þangað til annað kemur í ljós. Er ég sáttur við það? Nei ég get ekki verið það, þetta er tilfinningamál hjá mér og ég get ekki slökkt á þeim tilfinningum.

Ég vona að meirihluti Íslendinga verði sammála mér á einhverjum tímapunkti, helst áður en það verður of seint. En svona er þetta, lýðræðið snýst um það að viðurkenna að maður tilheyrir minnihlutanum þegar maður gerir það, súrt ég veit, en maður heldur bara áfram að reyna sitt.

jæja, vonandi komust þið í gegnum þennan póst hjá mér. Líklegast er ekki mikið kjöt á beinunum hérna hjá mér, en ég bara varð að skrifa niður þessar hugsanir hjá mér.

//Helgi

Saturday, May 27, 2006

Sjálfstætt fólk.

"Hvað er auður, afl og hús ef enginn jurt vex í þinni krús?"
-Bjartur í Sumarhúsum.

Svo mælti herra Bjartur í sumarhúsum þegar steypu hús ævintýrið hans var á enda og hann sat uppi slippur og snauður búinn að selja sjálfstæði og lífsýn sína til þess að verða maður meðal manna í samfélagi voru, eða þannig leit það út þangað til allt hrundi í kringum greyið Bjart.

Það var einhver snjöll kona sem minntist á þetta kvæði Bjarts, ef kalla má svo, á fundi Íslandsvina niðrá austurvelli í dag og var hún þar að vísa tengs reynslu Bjarts við það sem íslendingar eru að ganga í gegnum í dag í sambandi við virkjanir og ál verksmiðjur.

Ég hef ekkert verið að fela þá afstöðu mína að ég er á móti virkjunum og álvæðingu íslenska kynstofnsins, og er það nokkuð augljóst frá mínum sjónarhóli séð að ritverk Halldórs Laxnes ættu að geta kennt okkur þó nokkuð um það hvernig við ættum að taka á framtíð íslands. Verð ég reyndar að viðurkenna að ég er þá að vísa nær alfarið í bókina Sjálfstætt Fólk sem er ein tveggja bóka sem ég hef lesið eftir kappan (hin er Íslandsklukkan) og vona ég að fáfræði mitt á verkum Halldórs verði nú ekki til þess að skoðanir mínar verði grafnar í jörðu við hliðina á sjaldséðnum perlum íslenskar náttúru.

Í stuttu máli, Ísland er ekki á bjarmi gjaldþrots, við erum ekki í vandræðum með að brauðfæða börnin okkar eða koma fata görmum utan á kroppin okkar. Hvers vegna erum við að selja okkar fjárhagslegt og siðferðislegt sjálfstæði?

Með því að hleypa inn í landið erlendum stór fyrirtækjum sem styrkja til styttri og lengri tíma einstaka bæjarfélög útá landi, þá erum við að gera okkur háð þessum fyrirtækjum. Þegar einstaklingur eða samfélag verður háð utanaðkomandi aðstoð til þess að viðhalda sjálfum sér þá er sjálfstæði þess hins sama að lýða fyrir það. Ekki má taka ákvarðanir sem styggja máttarstólpa samfélags einginga þar sem utanaðkomandi aðilin er til staðar, því jú hann gæti farið og hvað gerist þá? Allt fer fjandans til, eða það halda allir, hræðsla stjórnar öllum skoðunum og ákvörðunum.

Samskonar aðstaða var búinn til eftir stríð á suðurnesjunum, erlendur her varð nafli heils bæjarfélags og núna í mars tilkynnti Bandaríkjastjórn að þeir væru að fara, og hvað gerist? Ekki fer fólk útá götur að dansa af gleði vegna þess að sjálfstæði samfélagsins sé í sjónmáli, heldur er leitað að nýjum aðila til þess að eigna sér naflamiðju þessa einstaka samfélags. Fólk virðist ekki vilja sjálfstæði, fólk er hrætt því það kannast ekki við sjálfstæði.

Eða þannig lítur það út fyrir mér allavegana, það virðist vera einföld lausn að selja náttúruna okkar ódýru verði og í leiðinni selja, nei gefa sjálfstæðið okkar með.

Förum nú og lesum um Bjart í Sumarhúsum og athugum hvort við getum lært af reynslu kappans.

//Helgi

Monday, May 22, 2006

Hvað ætla ég að kjósa.

Já, það er rétt ég ætla að segja ykkur það.

Ég mun kjósa Vinstri Græna í næstu borgarstjórnar kosningum.

Hvers vegna spyrja sum ykkar sem þekkja bláa vatnið sem rennur í mínum æðum, nú ég er ekki að snúa baki við hægra beininu í mér og mun atkvæðið mitt verða endurskoðað og ígrundað ítarlega fyrir alþingis kosningar. En málið er einfaldlega það að mér líst vel á það að Sjálfstæðis flokkurin nái meirihluta í Reykjavík, en mér líst en betur á það að Vinstri Grænir nái því að vera með viðveru í borgarstjórn og umboð frá eins mörgum borgar búum og hægt er.

Verð þó að viðurkenna það að ég vill ekki sjá þá mikið stærri en með 15-20%, og ef það kæmi meira fylgi þá væri það hrein og skýr skilaboð til allra pólitíkusa á íslandi, þar að leiðandi frábært.

Við viljum vera Græn-Ísland!

Eða það vona ég allavegana, mig langar til þess að sjálfstæðis flokkurin og sem flestir flokkar á þingi taki sér græna hugsun til fyrirmyndar. Mér finnst ekkert vera því til fyrirstöðu að Hægri flokkar geti verið náttúruvænir, auðvitað er aðeins erfiðara að vinna að hægri sjónarmiðum (eða það hlýtur að vera) í grænni hugsun en ég tel það vera erfiðisins virði.

Ég vill ekki sjá álver, ég vill ekki sjá virkjanir, hvorki jarðvarma né stífluvirkjun. Ég vill ekki sjá nokkuð annað sem hættir framtíð og fegurð náttúru íslands (vísa ég í eldri blogg færslu sem heitir "Homo Egocentricus" hér til hægri).

En það verður að viðurkennast að ég myndi vera snöggur að kjósa sjálfstæðis flokkin ef ég teldi hættu á því að samflykkið næði einhverju umtalsverðu fylgi, svona er ég nú tvöfaldur.

//Helgi

Thursday, May 18, 2006

Sekur eða Saklaus.

Ég las á bloggi vinkonu minnar setningu sem oft hefur verið notuð í tengslum við átök og leiðinlega hluti annarstaðar í heiminum. Þessi setning byggir á svo miklum hroka þegar hún er notuð í samhengi við heimsviðburði að mér blöskrar.

"Við erum jafn sek og þeir sem gera slæma hluti, þegar við veljum að gera ekki neit."

Þessi setning er auðvitað í grunn meiningu rétt, ef ég hef aflið til að breyta en geri ekki neitt þá er ég alveg jafn sekur og persónan sem gerði verkið. Það er ekkert flókið og hægt er að nota þessa setningu um marga hluti í daglegu lífi.

En þegar fólk fer að nota þessa setningu um heimsviðburði og benda á mig sem einhvern gaur sem vel það að gera ekki neitt og er þar af leiðandi sekur þá verð ég einfaldlega reiður. Hvað á ég að gera í stríðinu í Írak? Fara þangað og skjóta nokkra bandaríkjamenn til bana? Ég verð nú ekki mikið saklaus þá, hey ég veit ég skal skrifa undir blað þar sem ég tjái heiminum að ég sé á móti þessu stríði, jáhá það kemur mér í hóp saklausa fólksins jíbbí!

Mér finnst notkun þessarar setningar oftar en ekki vera hræsni, hvernig er maður saklausari en ég þegar það eina sem hann gerði var að birta auglýsingu í New Yort Times? Ef aðgerð breytir ekki neinu þá er hún gagnslaus og fólk er ekkert meira saklaust.

En því líður kannski betur, það er líklegast málið. Eigingirni fólksins er slík að það þarf að upphefja sjálft sig yfir aðra sem gera ekki neitt án þess að gera nokkuð.


// Helgi Hnuff.

Wednesday, May 17, 2006

Skapaðar aðstæður.

Var bennt á þetta í dag.

Þú sáir hugsun og uppskerð framkvæmd
þegar þú framkvæmir sáir þú venju
Sáir þú venju uppskerð þú skapgerð
sáirðu skapgerð uppskerðu hlutskipti

Úr bókinni "Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn" eftir Robin S. Sharma.

Mér finnst mikið til þessarar hugsunar koma sérstaklega þar sem hún lýsir og fókusar hugsunahætti sem ég hef verið að temja mér undanfarna mánuði.

//Helgi