Tuesday, March 14, 2006

Vill ekki vera baunadós.

Ég ákvað það að líta í kringum mig í leita að nýjum banka, KBbanki hefur reyndar ekkert svikið mig eða þannig, ég er einfaldlega bara ósáttur við stefnu þess fyrirtækis. Hvers vegna spyrðu?

Einu sinni fyrir langa löngu vann ég í Hagkaup, nánar tiltekið í Hagkaup skeifunni. Þetta var fyrir daga kringlunnar, já ég er svona gamall, og ég vann sem aumur kerrustrákur og síðar sem grænmetistæknir (þar sem ég var alin upp af yndislegum hóp af kvennfólki sem ég virði og dái til dagsins í dag, þó ég hafi ekki séð þær í hjartnær 10 ár eða rúmlega það) en það er nú kannski saga til síðari tíma.

Þegar ég vann í Hagkaup heyrði ég hlut sem hefur ferðast með mér í gegnum öll þessi ár og þá örsögu ætla ég að segja ykkur frá og svo mun ég tengja það við ákvörðun mína að skipta um banka.

Þannig var að einhver séffi í Hagkaup var að halda ræðu um mikilvægi virðingar á milli einstaka deilda í skeifunni, man nú ekki ástæðuna en þetta var stór hópur af fólki sem vann í Hagkaup á þeim tíma (ein til tvær manneskja í hverjum gang á móti ein til tvær manneskja í allri búðinni í dag) þannig að líklega hefur eitthva nuddast á milli, en ég tef söguna með of miklum díteils. Hann var semsagt að segja okkur að á meðan báðar deildirnar (matvara og sérvara) væru mikilvægar til að halda uppi heiðri búðarinnar, þó væri mun meiri peningur að koma inn í sérvöruna, man nú ekki alla ræðuna en það sem ég man (eða tel mig muna) er þessi setning:

"Tildæmis þá þarf að selja 130 baunadósir til að fá sama gróða og fyrir einar gallabuxur." Fjöldi baunadósa gæti hafa breyst með minningunni og efnahag.

En þetta er einmitt málið, stóru bankarnir í dag eru með okkur alþýðuna í bankanum sínum útaf því að við erum þar, við erum örugg tekju lind sem ekki má gleyma því það má ekki henda peningnum. En við erum ekki stór partur af þeim hrikalegu upphæðum sem þeir eru að skila í hagnað á ári hverju.

Hagkaup mun aldrei hætta að selja baunadósir, og KBbanki mun aldrei hætta að bjóða þjónustu til einstaklinga. En KB banki er að græða mun meira á verðbréfabraski, og öðrum hlutum sem ég kann ekki að nefna, en á mér sem einstakling.

Ég veit ekki hvað þetta þýðir fyrir mig, líklegast er ég ekki að tapa neinu, en það breytir ekki því að ég vill ekki vera baunadós.

Svo er bara spurninginn, vill SPRON taka við mér?

Sjáum til,
Kveðja
Helgi Gallabuxur.

4 Comments:

At 4:35 PM, Anonymous Anonymous said...

:):) Frábært að þú sért farinn að blogga aftur:) og já þú ert baunadós þar til þú hefur stærri viðskipti.. þar til þú ferð að telja inn meiri hagnað fyrir bankann.. en af hverju viltu að bankinn hagnist meira á þér?

En svona okkar á milli ertu miklu meira en gallabuxur;) þú ert ekta leðurjakki.

 
At 1:33 AM, Blogger Author said...

Þetta snýst ekki um að bankin hagnist meira á mér, þetta snýst um að vera í viðskiptum við fyrirtæki þar sem ég er partur af þeirra aðal viðskiptasviði.

Tildæmis bensínstöðvar, þeir selja bensín en eru með aukabúgrein að selja nammi og aðrar vörur. Manni dettur seint í hug að nota bensínstöð sem allrahanda verslunarstopp vegna verðs og úrvals.

Ég er ekki að segja að þetta sé það svart og hvítt hjá bönkunum, en mér finnst þessi þróun ekki vera að fara í rétta átt.

Ég kem inná þetta betur í næstu bloggfærslu :)

 
At 3:55 AM, Anonymous Anonymous said...

Snillingur :-) Er algjörlega sammála þér... Er einmitt að standa í þvílíkum "viðskiptum" við einmitt KB-Banka vegna kaupa á húsi... Kom frá SPV :-| Sem ég hef því miður ófagrar sögur um...
kv, MrB(ean)

 
At 2:31 AM, Blogger Arnþór Snær said...

Persónulega vil ég beina viðskiptum mínum til fyrirtækja sem hafa annaðhvort einstaklinga sem sína aðaltekjulind eða skýra afmörkun á milli einstaklinga og fyrirtækjaviðskipta.

Annar drekkja fyrirtækjaviðskiptin einstaklingunum og allt vöruframboð, þróun, þjónusta o.s.frv. er miðað við þarfir fyrirtækjana.

Gott dæmi fyrir okkur mac nördana er munurinn á Apple og Microsoft. Einstaklingar eru core-buisness Apple á meðan fyrirtækin eru core-buisness Microsoft... og það sést í allri nálgun þeirra.

Vertu velkominn til Spron, ég er einn af þessum ánægðu kúnnum.

 

Post a Comment

<< Home