Spurning mín.
Góðan dag,
Nú er mikið í umræðunni að gera Reykjavík að fjölskylduvænni borg og ber þá hæst í umræðunni Leikskóla gjöld og annað í þeim dúr.
Ég spyr sem einstaklingur með lítil sem enginn áform um það að eignast börn í framtíðinni hvort þetta sé það eina sem sé verið að pæla í gagnvart þessu.
Þá vill ég benda sérstaklega á lélega aðstöðu línuskauta áhugamanna í borginni þar sem margir stígar hafa ekki verið endurnýjaðir í fleirri ár og hreinsun stíga fyrir utan vinsælustu göngu og hjóla leiðir er verulega ábótavant og eru jafnvel ekki hreinsaðir yfir höfuð yfir sumartíman.
Einnig hafa utanhús-körfubolta vellir ekki fengið mikla alúð þessi seinni ár undir stjórn R lista.
Einnig þætti mér vænt um að heyra frekari hugsanir sem snúast að fjölskylduvæðingu Reykjavíkur sem snýr ekki að veskjum foreldra með börn á leikskóla aldri.
er þetta markverð spurning hjá mér?

1 Comments:
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki verið sakaður mikið um að vera fjölskylduvænn úr hófi.
Gaman verður því að sjá hvað setur.
Post a Comment
<< Home