Wednesday, May 17, 2006

Lýðræði.

Jæja kosningar að koma og svona, fólk að taka til fínu fötin og fara á kjörstað og setja hak við hliðina á þeim flokki manna sem þeim þykir mest til koma. Valkostirnir eru sem betur fer fleirri í henni Reykjavík en hefur verið undanfarin skipti þannig að núna nær maður að hugsa og pæla meira í þessu, ekki að það sé endilega gott.

En þar sem ég nenni yfirleitt ekki að tala við ykkur hin um pólitík hvort eð er þá nenni ég nú ekki að fara að skrifa um það heldur og ætla ég mér að ræða um eitthvað annað tengt þessu öllu.

Málið er að Fulltrúa lýðræði, eins og við notum á íslandi, er form lýðræðis sem virðist virka best. Langt frá því að vera fullkomið en virðist samt virka. Mér finnst aftur á móti fólk ekki alveg nógu duglegt við að nýta sér það afl sem það hefur sem einstaklingur í lýðræðis ríki. Það að fara á kjörstað er reyndar augljósasta verkfærið sem við höfum, en það er langt frá því að það sé það eina, það er í raun að mínu mati ekki valkostur að fara að kjósa heldur er það skylda manna í þessu þjóðfélagi að mæta á kjörstað og skila inn atkvæði sínu, hvort sem það sé autt eða með merki við staf.

Svo er annað verkfæri Lýðræðis að mínu mati, og það er daglegt val okkar. Allar þær ákvarðanir sem teknar eru daglega tengjast að einhverju leita Lýðræðinu sem við lifum við, fyrir það fyrsta erum við meðlimir í samfélagi manna og þurfum við öll að bera ábyrgð á okkur veru í því samfélagi, þetta gerum við með því að fara eftir þeim lögum og reglum sem sett hafa verið til þess að allt fari ekki andskotans til.

Svo borgum við skatta í margskonar formi, sá peningur er notaður til þess að halda samfélaginu gangandi á ýmsan hátt, vegir, spítalar og löggæsla er svona það augljósasta. Þannig að núna erum við komnir með tvær skyldur samkvæmt skoðunum mínum, borga skatta og nýta kosninga rétt okkar.

Svo eru margvíslegar smærri hlutir sem við getum gert dags daglega sem hafa áhrif á samfélagið í heild sinni, einnig verðum við að taka ábyrgð á þessum skoðunum og ákvörðunum okkar.

Villtu keyra um á jeppa innanbæjar sem nær að keyra 6 kílómetra fyrir hvern líter af bensíni? Eða ertu sáttari við littla smá bílin sem keyrir 15km per lítra? Ferðu á hjóli í vinnuna? Labbarðu útí búð til að spara bensín?

Þetta eru allt saman ákvarðanir sem hafa fyrst og fremst áhrif á veskið hjá viðkomandi, en hvort sem það séu eiginhagsmunir eða félagshagsmunir sem ráða ferðinni að þá eru þetta einföld dæmi um hluti sem eru lýðræðis legs eðlis og í raun há pólitísk. Allar ákvarðanir sem snúa að bensíni og samgöngum eru hlutir sem skipta máli fyrir samfélagið.

Einnig hefur það áhrif hvar og hvað þú verslar, hvort þú sækist eftir menntun eða ekki osfv.

Allar ákvarðanir sem hafa einhver áhrif á hversu mikla skatta þú borgar eða hversu mikið álag þú setur á samfélags þjónustur eru ákvarðanir sem skipta máli fyrir þjóðfélagið. Og ég verð að segja að þetta eru mun mikilvægari ákvarðanir en hvað þú ákveður að setja á kjörseðilin á kjördag.

Þannig að tilgangur þessarar færslu í bloggið mitt er einföld, hugsaðu hvaða áhirf þínar gjörðir og ákvarðanir hafa áhrif á samfélagið sem þú býrð í og þá verðurðu virkur og öflugur meðlimur í lýðræðinu okkar.

dramatískt ha? :)

1 Comments:

At 2:16 AM, Anonymous Anonymous said...

Dramatískt:) já:) en svooo rétt!! Ég skipti máli, vinir mínir líka og börnin mín sem tengir sig svo í að börn vina minna skipta máli og barnabörn mín, svo makar þeirra og þannig teygir keðjan sig alveg til allra sem ég þekki bara ekki neitt... svo við skiptum öll máli og þá skiptir þetta allt máli allt sem við gerum:)

 

Post a Comment

<< Home