Thursday, May 18, 2006

Sekur eða Saklaus.

Ég las á bloggi vinkonu minnar setningu sem oft hefur verið notuð í tengslum við átök og leiðinlega hluti annarstaðar í heiminum. Þessi setning byggir á svo miklum hroka þegar hún er notuð í samhengi við heimsviðburði að mér blöskrar.

"Við erum jafn sek og þeir sem gera slæma hluti, þegar við veljum að gera ekki neit."

Þessi setning er auðvitað í grunn meiningu rétt, ef ég hef aflið til að breyta en geri ekki neitt þá er ég alveg jafn sekur og persónan sem gerði verkið. Það er ekkert flókið og hægt er að nota þessa setningu um marga hluti í daglegu lífi.

En þegar fólk fer að nota þessa setningu um heimsviðburði og benda á mig sem einhvern gaur sem vel það að gera ekki neitt og er þar af leiðandi sekur þá verð ég einfaldlega reiður. Hvað á ég að gera í stríðinu í Írak? Fara þangað og skjóta nokkra bandaríkjamenn til bana? Ég verð nú ekki mikið saklaus þá, hey ég veit ég skal skrifa undir blað þar sem ég tjái heiminum að ég sé á móti þessu stríði, jáhá það kemur mér í hóp saklausa fólksins jíbbí!

Mér finnst notkun þessarar setningar oftar en ekki vera hræsni, hvernig er maður saklausari en ég þegar það eina sem hann gerði var að birta auglýsingu í New Yort Times? Ef aðgerð breytir ekki neinu þá er hún gagnslaus og fólk er ekkert meira saklaust.

En því líður kannski betur, það er líklegast málið. Eigingirni fólksins er slík að það þarf að upphefja sjálft sig yfir aðra sem gera ekki neitt án þess að gera nokkuð.


// Helgi Hnuff.

3 Comments:

At 4:08 PM, Blogger Sóley said...

Maður getur alltaf gert meira og hver á að ákveða hvenær maður hefur gert nóg og getur þ.a.l. verið dæmdur saklaus? Hver er það sem dæmir mann sekan eða saklausan? Er það ekki bara maður sjálfur?

Á meðan ég leitast við það að gera það sem ég get með góðu móti gert og passa mig á því að stinga ekki höfðinu í sandinn er ég nokkuð sátt og dæmi mig saklausa þrátt fyrir að hafa hugsanlega ekki skrifað nafnið mitt á "rétt" blað :)

 
At 2:55 AM, Anonymous Anonymous said...

Eina sektin eða sakleysið sem skiptir máli er það sem "í hjarta þér býr".

Maður ætti að forðast að taka um mælikvarða annara þegar að þessum málum kemur.

En það er bara mín skoðun.

 
At 2:56 PM, Anonymous Anonymous said...

[url=http://www.playatonlinecasinos.com/]free casino bonus[/url] [url=http://www.casinovisa.com/blackjack/]online casino games[/url] , [url=http://www.concordiaresearch.com/games/roulette/index.html]video poker[/url] , [url=http://www.realcazinoz.com]online blackjack[/url] , [url=http://www.avi.vg/category.php?a=sex4sexx&cid=3]penis enlargers[/url]

 

Post a Comment

<< Home