Vara á lager.
Hérna kemur smá hugsun sem hefur verið að gerjast hjá mér.
Segjum sem svo að þú sért kaupmaður útí á landi, þú sérð um að kaupa mjólk af bóndum og flytja til Reykjavíkur þú og bændurnir eruð búnir að fjárfesta miklum pening í búnað, aðferðafræðis kennslu og rannsóknir en eruð samt að njóta góðs af rekstrinum og eruð bara nokkuð sáttir við ykkar stöðu.
Í Reykjvík er fyrirtæki sem kaupir af þér vöruna, vinnur hana og kemur henni í umferð á meðal alennings. En og aftur eru miklar fjárfestingar í gangi hjá þeim aðila og endursöluaðilum, og þó um gróða sé að ræða þá eru skuldir vegna fjárfestinga hugsanlega til margra ára og þarf að viðhalda reglulegum rekstri og sölu til þess að borga af þessum lánum til endaloka.
Ýmindaðu þér nú að það kemur til þín maður sem segir þér frá alveg frábærri vöru sem sé með sama næringargildi og mjólk, hægt að vinna sömu vörur úr henni og er mun hollari fyrir umhverfið sem og neytandan en það er ekki hægt að nýta neitt af þeim búnaði sem fjárfest hefur verið í til þess. Hvað segirðu þá? Á að henda öllum þeim tækjum sem búið er að koma sér upp bara til þess að hjálpa umhverfinu? hvaða rugl er það? Og bændurnir hvað eiga þeir að gera? ekki rækta þeir þessa nýju vöru?
Semsagt allt fer á annan endan hjá þessum iðnaði og munu þeir berjast með kjafti og klóm gegn þessari nýjung.
Þetta er einmitt að mínu mati sú aðstaða sem stóru olíufyrirtækin standa fram fyrir í dag, það hefur hrikaleg fjárfesting átt sér stað vegna þess iðnaðar sem er til í kringum olíu og það er ekki bara fjárfesting í búnaði heldur eru heil þjóðfélög sem eiga allt sitt undir því að sala olíu haldi áfram eins lengi og hægt er.
Stóru olíufyrirtækin eru tildæmis í dag að skipta út öllum stóru olíu flutninga skipunum sínum til þess að standast nýja staðla sem settir hafa verið í Evrópu og Bandaríkjunum, þessir staðlar voru settir vegna umhverfis slysa og er seinasti séns til þess að skipta þessum skipum út árið 2015. Talið er líklega að það verði klárað fyrir árið 2010. Mikil fjárfesting í gangi þarna...
Þess fyrir utan eru öll stóru olíufyrirtækin að græða meira á þessu ári en því síðasta, og flæði olíu til hinna vestrænu landa alveg hreint ótrúlegt. Svo heyrast raddir um að það þurfi að finna nýjan kost, bæði fyrir umhverfið og þá sérstaklega útaf því að olían er að klárast.
En ég get lofað ykkur því að olíufyrirtækin munu skipuleggja sölu síðasta olíu dropans áður en þeir leggja vinnu í að finna hvað tekur við þegar olían er búinn, því olían er að þeirra mati óseld vara sem situr bara á lager og maður hættir ekki að selja vöru af lager bara útaf því að það eru til betri kostir, eða er það?
Eigum við ekki bara að taka þátt í þessu og kaupa okkur Hummer? þá verða olíu fyrirtækin ánægð með þig.
//Helgi

1 Comments:
"Olíufyrirtækin munu skipuleggja sölu síðasta olíu dropans áður en þeir leggja vinnu í að finna hvað tekur við þegar olían er búinn"
Eg held ad thetta se ekki annad hvort eda, thau eru liklegast buin ad finna ut hvad tekur vid og buin ad velta thvi fyrir ser hvernig buisness modelid aetti ad vera. Bilaframleidendur lika. Eg vaeri ekki hissa ef ad thar vaeru samraedur.
Post a Comment
<< Home